Hola todos en Islandia!!!
Vá mikid búid ad gerast og margt sem ég tarf ad segja!!!
Til ad byrja med var Carnaval hér í Ecuador sem er bara ein besta hátíd í heimi

ég fékk 5 daga frí í skólanum og fjolskyldan hans Carlos baud mer ad koma med teim í hús sem tau eiga í bae sem heitir San Fernando og er rúmum klukkutíma frá Cuenca. Ég var svona nett stressud ad turfa ad vera med fjolskyldunni hans í 4 daga tvi ég hafdi aldrei talad vid tau ádur bara séd tau tegar vid forum í kirkju.
Allavegana tá fórum vid Carlos med Fernando sem er eldri bródir hans Carlos en restin af fjolskyldunni (mamman, pabbinn og Enrique yngri bródir) hofdu farid tveim dogum ádur.
Tegar vid komum ad húsinu voru helling af fólki tarna..mamman, pabbinn, Enrique, Nancy (vinnukona) og synir hennar Alejandro og Freddy. Svo voru fraenkur og fraendar og helling af nágronnum tvi tau voru ad grilla heilt svín!!! Ég var kynnt fyrir ollum og einn fraendinn var alltaf ad blikka Carlos tegar hann hélt ad ég saei ekki til

Tetta var alls ekkert tad vandraedalegt og allir rosa naes vid mig.
Svo var kallad í mat og mamman rétti mér risastórt stykki af svínahúd

ég fékk nett sjokk og leit á Carlos og hann sagdi med vorunum bordadu tetta!!!. Ég píndi í mig grillada svínahúd med salti og chillisósu. Og tegar mamman baud mér meira sagdi ég ad ég gaeti bara ekki bordad meira ég vaeri svo sodd

Nancy vinnukonan sem tau hafa hjá sér er rosalega hávaer og ung (25 ára)og hún á tvo syni Alejandro (2 ára) og Freddy (5 ára). Hún hefur átt rosalega erfida aevi og var rosalega heppin tegar foreldar Carlos tóku hana ad sér sem vinnukonu tegar hún var ólétt af Alejandro og vissi valla hver var fadirinn og hann var ekki sá sami og sá sem hún átti Freddy med. Hér er tad ekki vel litid ad eiga born med sitthvorum manninum og verra ad vera einstaed. Allavegana tegar hún var lítil tá bardi mamma hennar hana og hennti henni útaf heimlinu svo hún fékk aldrei taekifaeri til ad fara í skóla og ádur en hún fékk tessa vinnu átti hún bara fotin utan á sér og ekkert meira. Aftvi ad hún fór aldrei í skóla kann hún ekki ad lesa, ekki ad skrifa, ekki ad reikna og kann bara ad telja upp á 30. Tetta er frekar algengt tvi í Ecuador er ekki skólaskylda svo ef tú átt ekki efni á skólabúning handa barninu tínu tá er ríkinu allveg sama svo krakkarnir fara aldrei í skóla.
Dvolin tarna var rosalega skemmtileg og vid gerdum allt sem haegt er ad gera tegar er Carnaval. Vid fórum í vatnsslagi og héldum veislu og spiludum 40 (spil frá Ecuador). Svo einn daginn fórum vid til Yungilla sem er lítill baer en rosalegur heitur svo allir fara tangad tegar tad er Carnaval til ad geta blotnad án tess ad verda veikur.
Vid fórum svona 20 manns til Yungilla á einum bíl. Tetta var pallbíll og inní pallbílnum voru mamman, pabbinn, fraenka, fraendi, ég og Carlos, svo var litli Alejandro settur í fangid á mér og ég fékk stanslausa brandara um ad ég vaeri ad aefa mig og var spurd ítrekad hvenaer vid Carlos kaemum med eitt...Vid Carlos vorum tau einu sem hlóu ekki!!!!

Aftan á pallinum voru 13 manns trodid og tau voru svo óheppin ad vera bleytt alla leidina tvi fólk var út um allt med vatnsslongur ad bleyta bíla. hahahah

Tegar vid komum til Yungilla komum vid ad á...og tar var hellingur af fólki, DJ og svaka party, allir ad bleyta alla.
Fyrst bordudum vid og allir nema ég bordudu Cuy (naggrísi) en ég fekk grillad kjot.
Eftir tad var einhver blindfullur nágranni á eftir mér og Carlosi med fotu fulla af vatni. Carlosi og ég stukkum yfir drulluá sem var svo dullug ad tetta var eins og kviksyndi, madur sokk allveg nidur. Aftvi ad Carlos er staerri en ég og med lengri lappir nádi hann ad stokkva yfir en hann hélt í hendina mína og ég nádi ekki ad stokkva svo ég datt útí ána og týndi einum flipp floppinum mínum

tá koma Nancy hlaupandi og grýtti sér úti og hjálpadi mér ad leita..Carlos stód á bakkanum og skipadi vinum sínum ad hjálpa mér ad leita af skónum en tegar ég sagdi honum ad hjálpa mér tá sagdi hann ad vildi ekki skíta sig út. Útaf sínum pempíuskap tók ég í hann og grýtti honum út í og tá hófst brjáladur drulluslagur og allir baettust í hópinn...Greyid Nancy var svo drullug reyndi ad garga ad hún hefdi bara verid ad leita af skónum mínum en pabbi hans Carlos sýndi enga miskun. Eftir slagin var ég svo skítug ad engin gat vitad í hvada litum fotin mín voru. Carlos var kvartandi í svona 10 mínutur hvad skónir sínir vaeru skítugir en hann fékk illt auga frá mér og ég sagdi honum ad halda sér saman tvi ég aetti ekki einu sinni skó til ad vera í.

Fraenka hans Carlos (Carmen) var svo gód ad lána mér sína skó. Eftir tad fóru allir ad ánni og vid skoludum okkur.

Eftir gedveikan dag var haldid aftur til San Fernando og var Alejandro settur aftur í fangid á mér og krúttid svaf í fanginu mínu alla leidina. Nancy var ekkert smá takklát tad sem eftir var ferdarinnar tvi ég var alltaf ad halda á Alejandro gefa honum ad borda tegar hún var med Freddy. Hér er ekki algengt ad vera gódur vid annarra manna born.
Daginn sem vid fórum heim vaknadi ég med kýli á hendinni

ég er med svo hryllilegt ofnaemi fyrir bitum og ég var stungin á handabakid og ég var med tvofalda hendi...Nancy stokk til og setti áfengi á hendurnar mínar og faeturnar tvi ég var oll út í bitum. Svo var haldid í baeinn og í bílnum hringdi mamma (frá Íslandi) og tad slóg daudatogn á alla í bílnum. Tau voru oll gáttud á tvi tungumáli sem ég var ad tala. Alltaf jafn gaman ad sjá svipinn á fólki tegar ég byrja ad tala íslensku

En frá einu í annad tá var Valentínusardagurinn (San Valentín) á fimmtudaginn seinasta. Á midvikudagsnóttina var ég vakin af mommu minni klukkan hálf 2 og hún sagdi mér ad fara út. Ég hljóp út og tar stód Carlos med vinum sínum og tar var bíll med hátolum og hann spiladi vinsaelt ástarlag fyrir mig og tad var svo mikill hávadi ad ég er viss um ad allt hverfid vaknadi. Tetta er gomul hefd og kallast Serenata. Serenata gengur út á tad ad 13.febrúar eftir klukkan 12 tegar tad er kominn 14.febrúar fara strákar ad húsum hjá kaerustum eda vinkonum sínum og syngja fyrir taer med gítar eda gefa teim lag eins og var gert vid mig. Madur hlustar á lagid og svo er haldid áfram tvi allir fara í morg hús tessa nótt. Carlos kom heim til sín klukkan 6 um morguninn og svaf tvi ekkert tessa nótt og maetti svo í skólann svo mygladur ad ég fór ad hlaegja af greyinu.

Á Valentínusardaginn sjálfan kom hann ad húsinu mínu um kvoldid (hann má ekki koma inn, bara vera fyrir utan) og hann var med rósir og hjartablodru med gasi handa mér.
Valentínusardagurinn í Ecuador er svo stór ad tetta er ótrúlegt. Á hverju horni er fólk ad selja blóm, bangsa og blodrur og allt er skreytt í tilefni dagsins!!.
Eitt enn ég var gerd af Yfirklappstýru í skólanum mínum og ég tarf ad semja dans fyrir einhverja keppni ásamt vinkonu minni

Ítróttakennarinn vill svo mikid vekja athygli á mér og gerdi mig ad yfirklappstýru svo adrir skólar gaetu séd ad minn skóli vaeri med hvita, ljóshaerda stelpur í teirra lidi....tessi madur er ótrúlegur

Ég er orugglega ad gleyma einhverju en tetta er bara ordid svo langt. Klapp klapp fyrir ykkur sem lásu tetta allt.
Annars bara elska ykkur rosalega og sakna. Bara 4 og hálfur mánudur í mig.

Ást á ykkur,
ykkar Steiney:***